Brosa! Krakkar! Horfa á mömmu sína....

_3

Það er svo gaman að reyna að fá tvo einstaklinga til að gegna á saman tíma.


Í heitum potti á Flúðum

i_potti

Eyjapeyji

Um miðjan september fórum við til Vestmannaeyja. Saman nutum við þess að vera í heimsókn hjá Grétari Þór, Söru og foreldrum auk þess sem mömmurnar fóru í brúðkaup hjá Ingólfi og Snjólaugu. Frábær ferð þar sem Gunnlaugur Yngvi fékk að kynnast fyrstu lundapysjunni.

gye_pysja


Jarðarberja myndir

saetamus

Jarðarber eru svo góð.

saetastur_bw

Ég var orðin svolítið þreyttur og svo var þetta bara svo gott að ég lyngdi aftur augunum.


Er þessi fjölskylda alltaf í sundi :)

Erum búin að eiga frábæra helgi. Fengum góða gesti á föstudaginn þegar tengdó (Guðný og Helgi)kíktu í mat og Idol. Fórum frábæran rúnt austur á laugardaginn, hittum frábært fólk, keyrðum um fallegar sveitir landsins og nutum lífsins. Fórum svo að sjálfsögðu í sund. Sérstaklega skemmtilegur sundtími því Ágúst Þór fór með okkur. Guðrún var á bakkanum að þessu sinni enda engin manneskja í sundæfingar eftir að hún fór í bakinu. En við vonum að það fari nú að lagast. Fengum góða gesti á sunnudegi og höfum slappað vel af.

saetir_i_sundi

 Gunnlaugur Yngvi og Ágúst Þór í sundi.

agust_gunnlaugur_yngvi

 Gunnlaugur Yngvi var rosalega ánægður Ágúst Þór í sundi.

i_sundi

Mamma fékk að vera með á einni mynd líka.

duglegur_i_sundi

Gunnlaugur Yngvi að gera æfingar með mömmu sinni. Hann er orðin mjög styrkur eftir allar æfingarnar í sundinu og ekki laust við að mamman stefni í að verða "hel mössuð" þessar æfingar taka aðeins á þegar barnið er næstum 10 kg. (Hún hefði nú kannski getað lagað sundskýluna á barninu. Verður bara að gera það fyrir næstu myndatöku).


Allt gott að frétta af okkur

Aldrei þessu vant lætur bullið standa á sér. En það er allt gott að frétta og við leyfum myndunum að tala sínu máli.

med_kal

Við höfum aðeins verið að auka fjölbreyttni fæðunnar hjá prinsinum. Gunnlaugur Yngvi fær nú bæði sætar kartöflur og graut auk mjólkurinnar í hádeginu. Að auki erum við farnar að gefa honum ávexti í dúsu öðru hverju. Hann er mjög ánægður með þetta en engu að síður var hann alveg æstur í að fá kál. Honum dugði ekkert eitt salatblað til þess að sveifla í kringum sig heldur hætti ekki að rella fyrr en hann fékk heilan kálhaus í hendurnar.

Þetta var skömmu eftir frábæra heimsókn vinkvenna okkar, Siggu og Þórunnar. Mig grunar að Sigríður hafi komið honum uppá þetta :) 

henson

Hér er prinsinn kominn í galla sem hann fékk í sumargjöf frá genginu á Miðtúni. Kærar þakkir fyrir, gallinn mun kom að góðum notum í sumar.

hofrungakofun

Eins og við höfum áður sagt þá erum við á sundnámskeiði. Okkur líkar þetta svona líka rosalega vel. Á myndinni er Gunnlaugur Yngvi í svokallaðri höfrungaköfun. Þá fer hann alveg uppúr og svo á bólakaf með höfuðið á undan.


Við elskum að fara í sund

sund_1

1, 2, 3 og blása.

sund_2

Á bólakaf.

sund_3

Duglegur, alveg eins og Gunni (nafni minn) kafari.

sund_4

Við elskum að fara í sund.


Sætastur

katur2_minni

Maðurinn er orðinn 5 mánaða, kominn með 4 tennur, orðinn 9,5 kg og 69 cm. Hann er alltaf hress og kátur. Farinn að stunda sund og borða grænmeti.

sund_3

Gaman í sundi.

sund_2

Svo notalegt.

Video call snapshot 4

Þetta er Eydís, sæt og fín sem talar stundum við okkur frá Lima, Perú, á Skype. Okkur finnst það mjög gaman og þá finnst okkur eins og hún sé ekki alveg jafn langt í burtu.


Á flugi

Ronja Rán er alltaf á ferð og flugi eins og sést á þessari mynd.

ronja_a_flugi

 

 

 

 

 

 

 

tennur

Við höfum haldið uppteknum hætti, verið heima, ferðast um, notið lífsins og reynt að hitta vini okkar og fjölskyldur. Fengið næturgesti og viðrað okkur.

Annars er Gunnlaugur Yngvi helst að safna tönnum núna. Hann fékk tvær framtennur í neðri góm fyrir mánuði síðan og er nú hægt og rólega að bæta við þremur stykkjum í efri góm.

 

 

Um daginn fórum við í Mosó og hittum frændfólk okkar úr Vestmannaeyjum þar voru Ingólfur, Snjólaug og börn á ferð.

med_i_og_th

Hér er Gunnlaugur Yngvi með Ingvari og Þorbjörgu.

 

ingvar

thorbjorg

arni_thor

3_saman

Syrpa af systkinunum, Ingvar, Þorbjörg, Árni Þór og öll saman.

floki_klifrar

Flóki og Sibba komu til okkar um daginn. Þau pössuðu Gunnlaug Yngva með afa á meðan mömmur hans fóru í afmæli. Morguninn eftir var svona líka frábært verður í Sandgerði og við nutum þess að vera úti saman.

uti_ad_labba

Sama góða veðurdag komu Fríða Birna (frænka hennar Guðrúnar), Gummi og Anna Karen í heimsókn til okkar.

med_onnu_karen

med_fridu_og_gumma

En núna í dymbilvikunni fengum við Grétar Þór Sindrason í heimsókn ásamt Söru, systur sinni og Sæfinnu móður þeirra. Þau gistu hjá okkur í þrjár nætur. Við brölluðum ýmislegt saman og áttum góðan tíma. Drífa og Gunni, sem einnig voru uppi á landi ásamt sínum börnum, Ella og Örnu nýttu tækifærið og litu líka til okkar í Sandgerði.

med_soru_og_gretari_thor

Gunnlaugur Yngvi með Söru og Grétari Þór.

gretar_thor_klifrar

Grétar Þór að klifra.

sara_ad_renna

Sara að renna sér.

elli_og_arna

Arna og Elli í heimsókn hjá Gunnlaugi Yngva.

sara_med_is

Þegar Grétar Þór og Sæfinna fóru í sund þá fékk Sara meðal annars ís í morgunmat hjá Elínu.

gye_uti

Hér er snáðinn úti á góða veðrinu í Sandgerði.

i_klippingu

Hér er prinsinn í fyrstu klippingunni. Solla okkar er að klippa af honum kastaníubrúna lokkinn sem hann fæddist með. Mömmum hans fannst hann vera farinn að þynnast og vildu klippa hann af og eiga hann. Nýja hárið sem hann er að fá núna virðist ekki hafa sama fallega gyllta litinn.

ad_borda

Maðurinn er farinn að fá eina máltíð á dag. Sú máltíð samanstendur af sætum kartöflum, smjöri og vatni. Hann er alveg sjúkur í þetta lostæti og þegar matartíminn byrjar er eins gott að mömmurnar séu tilbúnar í að moka stöðugt.

Annars ætluðu þær að breyta aðeins til og auka fjölbreytni máltíðanna. Þær tóku sig til og gufusuðu og maukuðu peru, gættu þess að taka alla þræði frá, kældu niður í rétt hitastig og voru þvílíkt ánægðar með útkomu þessa tveggja kvenna verkefnis. En þegar þetta jukk barst upp að vitum sonarins var eins og þær, þessar tvær skælbrosandi stoltu mæður, væru að gera honum illt. Hann kúgaðist og hryllti sig, honum vöknaði um augun og hann horfði á þær með mjög svo vonsviknum augum og úr þeim mátti lesa "Hvar eru sætu kartöflurnar mína?" Síðan hefur hann ekkert þurft að takast á við nýjar bragðtegundir´.

Ein mynd að lokum af Ronju Rán. Hún hefur verið rosalega góð við bróður sinn. Hún gerir honum ekkert og lætur dótið hans næstum alveg í friði.

ronja_leikur

Hér er Ronja að skoða nýja dótið sem Sara og Grétar Þór gáfu Gunnlaugi Yngva. Bara skoða.


Liverpool

Hér er mynd af Guðrúnu Lísu og Gunnlaugi Yngva. Hann er kominn í búninginn sem Guðrún Lísa og fjölskylda gáfu honum. Það er algjör óþarfi að fjölyrða um þessa gjöf, myndin af vinunum talar sínu máli. Falleg og góð börn, snyrtileg til fara.

liverpool 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband