Við þökkum kærlega fyrir frábærar gjafir, góðar kveðjur og árnaðar óskir í tilefni þess að ungur maður hefur fæðst í þennan heim. Góðir vinir og fjölskyldur okkar hafa verið í sambandi og fjölmargir rekið inn nefið. Nokkrir þeirra sem hafa kíkt í heimsókn hafa verið svo heppnir að lenda inni á mynd hjá Elínu. Hér eru nokkrar þeirra mynda í stafrófsröð .
Með Gullu móðu, sem sennilega situr núna og prjónar á mig ullarnærboli eða sennilega situr hún og lærir fyrir próf. Það er líka mikið betra, vona að hún hafi aldrei tíma í nærbolaprjónaskap.
Hér er ég með Ömmu og afa á Norðurtúni. Þau eru þvílíkt ánægð með mig og eru rosalega rík og eiga nú orðið sjö stykki af barnabörnum (átta með Ronju).
Davíð og Obba eru búin að kíkja í heimsókn, bæði á spítalann og heim. Þau komu að sjálfsögðu með góðar gjafir eins og aðrir en að öllum öðrum ólöstuðum þá er hjartateppið eitt það besta sem ég hef fengið, "takk, Obba frænka mín".
Sibba móða er hér að hald á mér. Ég get alveg treyst því að hún fer ekkert að flækja sig í ullarbolaprjónaskap, þvílíkur léttir.
Hér er ég með Erlu Jónu, hún er rosalega góð við mig, en líka smá geggjuð. Hún fór t.d. sérstaka ferð til U.S.A. bara til að kaupa alls konar fyrir mig:)
Hér er ég með afa. það er ekki leiðinlegt að sitja með honum í ruggustólnum hennar mömmu.
Magnús Yngvi er búin að vera duglegur að heimsækja okkur og hjálpa mömmunum mínum. Það er honum að þakka að nú á ég bara eftir að setja úti-jólaseríurnar í samband.
Dagbjartur Heiðar og Sandra Dís, frændsystkin mín af Suðurgötunni komu aðeins við og kíktu á mig. Fleiri úr Suðurgötugenginu fara svo vonandi að láta sjá sig þegar ég er orðin aðeins stærri.
Bergný, vinkona okkar kom líka í heimsókn. Mér fannst það bara fara henni mjög vel að halda á mér.
Ágúst Þór er líka búin að koma nokkrum sinnum. Hann setti mig í bað og svo fékk ég að fara í ný föt sem hann gaf mér. Ég held að við séum bara svolítið líkir. Við erum alla vega frændur.
Gunnar Borgþór kom líka við og fékk aðeins að prófa að halda á mér. Hann er reyndar alveg ákveðinn í að bíða með að eignast leikfélaga handa mér.
Fanney Dóróte fer svo vel að vera með mig. Hún gæti kannski búið til leikfélaga handa mér?
Loksins einhver sem gerir gagn.... Gulla Finns. klikkar ekki og hún er sko með leikfélaga handa mér í bumbunni. Það var voðalega notalegt hjá henni, sýndi henni bara aðeins hvað ég get haft hátt.
Steinar kom og við lékum okkur aðeins í bíló saman.
Magnús Yngvi er bara orðinn nokkuð vanur með mig. Amma Gulla er svo stolt af okkur, litla og stóra, barnabörnunum sínum.
Karen S. stakk nefinu inn og fékk aðeins að knúsa mig.
Hér er Vallý, ljósmóðir að kenna mömmunum mínum hvað hægt er að gera ef okkur gengur illa að kúka.
Við skulum hafa eitt á hreinu ég þarf mitt dekur þó svo að ég sé orðin stóra systir. Bið að heilsa í bili, góðar stundir, Ronja Rán.
Flokkur: Bloggar | 28.11.2008 | 13:57 (breytt kl. 14:46) | Facebook
Tenglar
Geggjaðir bloggarar
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
ohhh en gaman að fá svona myndasyrpu!!!!!
vantar bara mynd með Eydísi móðu;)
góða helgi Brúskur minn og Ronja stóra systir;)
Eydís Huld, 28.11.2008 kl. 15:47
Guð hvað ég hlakka til að hitta ykkur.. Get ekki beðið eftir því að fá að knúsa litla frænda minn... Vonandi hitti ég á ykkur um jólin..... Kveðja Anna frænka
Anna Frænka Þorsteinsdóttir (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 20:07
sælar systur. gaman að sjá allar þessar myndir. hlakka ýkt til að hitta á ykkur næst þegar maður rúllar í bæinn.
Drífa Þöll (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 22:59
Fínar myndir.
Kveðja frá Köben.
Auður Erla (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 15:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.