Allt gott að frétta af okkur á Vallargötunni

gye_gaman

Það er ótrúlega gaman að vera til ! 

Þá er lífið loksins aftur komið á rétt ról eftir jólaleyfi og umgangspestir. Guðrún tók allar þær pestir sem við mögulega komumst yfir og lagðist killiflöt í rúmið með 40 stiga hita í þrjá sólarhringa, Elín lét sé nægja góða úthreinsun eins og eru svo vinsælar hjá Jónínu Ben., nema hún var ekkert að hafa fyrir því að fara til Póllands, heldur sá bara um þetta sjálf, heima, án allra tækni og Ronja Rán og Gunnlaugur Yngvi létu nú ekki plata sig úr í neina vitleysu og þessar umgangspestar bitu ekki á þau.

Annars fór drengurinn í skoðun og mælingu í vikunni og reiknast okkur nú til að hann sé búin að ná rétt tæpun 40% af lengd móður sinnar (Elínar) eða um 61 cm og kílóin eru orðin 6,33. Þannig að drengurinn dafnar vel og ekki geta mæður hans kvartað, hann er vær og góður, sefur langan dúr yfir nóttina, sefur vel úti í vagni yfir daginn og er hvers manns hugljúfi þess á milli.

Hér með látum við nokkrar myndir fylgja .

fanney_fjolsk
Árni, Fanney, Arna Kristín og Gunnar Franz kíktu til okkar á nýju ári.
arna_kristin_gunnar_franz
Stóru börnin voru mjög dugleg að halda á og passa litla, viðkvæma vin sinn.
agust_thor
Ágúst Þór kíkir reglulega til okkar. Hann er búin að fá að gera næstum allt fyrir frænda sinn nema að skipta á kúkableyju. Hann verður hjá okkur í vist í 12 daga og vonar að hann fái þá að skipta....... eða er það ekki Ágúst Þór ???
ad_spjalla
Gunnlaugur Yngvi spjallar um daginn og veginn.
gye_ehh
..... og hugsar oft til Eydísar frænku í Perú. Þegar hann saknar hennar mikið þá skellir hann sér í samfelluna frábæru sem hún sendi honum.
gudrun_helga_gye
Um daginn hittum við Guðrúnu Helgu, dóttir Úlla, hjá ömmu og afa í Reykjavík.
gye_mutd
Þessi mynd kom nú bara hér inn á síðuna fyrir tæknileg mistök :)
floki_drekka
Flóki hélt upp á afmælið sitt um daginn. Að sjálfsögðu mættum við í veisluna, Flóki er gestrisinn og passaði uppá að allir fengju veitingar.
andrea_anna_
Andrea Anna kíkti á okkur með Magnúsi Yngva, bróður sínum og pabba þeirra.
med_mye
Með Magnúsi Yngva.
alla_stella_bjorg
Við fengum góða gesti úr Vestmannaeyjum. Alla Stella, Björg og Sæmundur aðalgæi voru í bæjarferð og renndu í Sandgerði.
alla_stella_saemi_
alla_stela_gefur
Alla Stella gaf Gunnlaugi Yngva að drekka.
gye_1
Biðjum að heilsa að sinni, fjölskyldan Vallargötu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ dúllidúll!!! Rosalega er maður nú flottur (þrátt fyrir tæknileg mistök ;) ) og ekkert smá sem hann stækkar drengurinn. Það er alltaf á planinu að bregða undir sig betri fætinum og fara suður með sjó.........merkilegt hvað það er mikið að gera á krepputímum. En ætli maður líti ekki við í 1 árs afmælinu.......ágætt að miða við það. ;) En minn tími kemur og þá meiga "fullanir faaa að vaa sig" ;)

Sjáumst fjótlega

Sigga

Sigga "frænka" (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 19:15

2 identicon

Flottar myndir af sætum prins

Konný (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 22:35

3 identicon

Sætalús

Sigurbjörg (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 13:02

4 identicon

mikið er gott að vita það að hann heldur með góð lið í enska boltanum. Vildi bara koma þessu að Elín þú ert alltaf í minni hluta 

kv: Erla Jóna  biðjum að heilsa öllum 

Erla jona hilmarsdóttir (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 12:28

5 identicon

mikið er gott að vita að Gunnlaugur Yngvi heldur með góðu lið í enska ja man u

hann er rosa flottur í bolnunum. þú ert alltaf æði biðjum að heilsa Ágústi gangi þér vel að skipta á honum kv Erla og Fúsi 

Erla jona hilmarsdóttir (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 12:34

6 identicon

Flottastur!!!

Sæfinna (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband